miðvikudagur, janúar 25, 2006
Jjjjjjaaaaaaáááá
Ég man það núna .... það sem ég ætlaði að segja um daginn !!!!
Þannig er sko málið að ég hef aldrei fyrr en núna lent í því að kennarar kenna bara í 20 mín í fyrsta tímanum og leyfa nemendum svo að fara. Það gerðist í 2 tímum núna um daginn! En ekki í hinum tveimur!
Kannski er það vegna þess að tveir kennaranna eru með kennaraveiki og ELSKA að tala og tala og tala og tala :o)
Mér finnst alltaf allir vera að tala um að kennararnir þeirra hafi bara sagt “velkomin í skólann, hérna er kennsluáætlunin – sjáumst í næsta lífi” (nei djók –í næstu viku/næsta tíma)
Meira að segja var orðið á götunni einu sinni, að í MK væri fyrsti dagurinn eða fyrstu tveir dagarnir þannig að hver kennslustund væri eingöngu 20 mín ... ALDREI GERÐIST ÞAÐ Í FB ... allar 80 mínúturnar notaðar til hins ítrasta og kannski aðeins meira en það – stundum amk .
En allavegana þá upplifði ég þetta í fyrsta sinn núna
Fyrsta vikan er liðin og þá er búið að setja í fyrsta gír (1), og annan gír (2) og þriðja gír (3) og fjórða gír (4) – komin á smá ról og þá er bara að setja í Rallý-gírinn(R) og læra eins og það sé 1999...
Ég SKAL vera dugleg í vetur – það get ég sagt ykkur
Smá framtíðarplan - ég ætla að verða forsætisráðherra í smástund og breyta þrennu ... 1) gera heimavinnandi húsmóður að vinnu – þ.e. konur geti fengið borgað fyrir að vera heima og sjá um börnin sín og ala þau upp ef þær vilja –engin ofurlaun – bara lágmarkslaun –en laun samt
2) gera það að vera í skóla að vinnu líka –þ.e. fólk fær borgað einhver ákveðin laun –skv. ákveðnum reikningsreglum sem ég þarf ekki að finna út –en samt þannig að NÁM VERÐI VINNA á borði ekki bara í orði –gera svona eins og á hinum Norðurlöndunum – og líka ef fólk tekur einhver námslán þá breytist stórhluti þess í styrk ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt ... (ég á eftir að skoða þetta í smáatriðum –en þetta verður gert gott fyrir nemendur)
3) hætta að taka skatt af gamla fólkinu og ekki láta það borga hita né rafmagn – upp að ákveðinni upphæð (miðast við eðlilega notkun) og svo þurfa þau þá bara að hugsa um símareikninginn sinn – og hafa það gott –hætta allri þessari vitleysu og leyfa gamla fólkinu að njóta þess að vera til og fara til útlanda og gera gott við sig eins og fótasnyrtingar og kaffihús og svoleiðis
Svo þegar það er búið og fleiri atriði sem mér finnst að betur mættu fara – þá fer ég bara að vinna við eitthvað annað ...
Enn og aftur var ég svo “sniðug” að klukka sjálfa mig ... (klaufinn ég) ...
Það þýðir samt sem áður ekkert að svíkjast undan neitt
Gjörið svo vel
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru ekki örugglega að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Allavega þá þakka ég fyrir gott hljóð og hyggst fara að hlusta á kennarann minn sem var að ganga inn í stofuna
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 4:10 e.h.