fimmtudagur, desember 15, 2005
vá ... ég er bara eiginlega alveg jafn gömul og ég er ... þrátt fyrir að ég sé eiginlega bara 17 ára .... hugsa sér ... ég verð 23 eftir ~52 daga (hugareiknaði, er því ekki 100% viss)
hugsa sér ...
You Are 23 Years Old |
Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe. 13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world. 20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences. 30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more! 40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax. |
og svo fyrst ég er að skrifa á annað borð þá get ég alveg eins sett þetta hérna inn í leiðinni,
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig...
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig...
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig...
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér...
5. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig...
6. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!
og svo líka svar við sp. 6 frá Lindu og Óskari
Linda
- já við erum enn saman, nei við erum ekki trúlofuð og eigum ekki von á barni
Óskar
- nei ég fer ekki mjög oft í bíó, ég er svo oft í vinnunni, og nenni eiginlega ekki í bíó þegar ég er ekki að vinna - og kemst ekki í bíó í vinnunni, því það er actually vinna að vinna í bíó en ekki bara að hanga inni í sal og horfa á myndirnar ... ;o)
og eitt enn fyrst ég er hérna ...
ég vil bara óska henni Unni Birnu til hamingju með titilinn Miss World, hún er óttarlega yndisleg stelpan, og var það alltaf þegar við unnum saman líka í Bíóborginni ... hún hefur bara sýnt það og sannað að hún var ekki að komast áfram á því hver mamma hennar er, heldur bara vegna þess hver hún er ... ég viðurkenni að ég hafði mínar hugmyndir um samsæri .. en hef nú ákveðið að éta það allt saman ofan í mig ...
og annað þá er ég mjög ánægð að hann Halldór Ásgrímsson hafi sent henni kveðjur fyrir hönd okkar allra!! mér finnst að fólk ætti að leggja til hliðar einhverja öfga feminsta skoðanir og hugsa um þetta sem jákvæðan hlut, því Unnur Birna, eins og fullt af stelpum í keppninni, eru ekki bara sætar heldur eru þær líka bráðklárar ... og það er það sem skiptir máli, hún Unnur Birna er okkur til sóma og mun standa sig - ég efast ekki um það ...
núna þarf ég, að fara að halda áfram að læra fyrir síðasta prófið mitt...
gangi öllum vel sem eiga eftir próf og til hamingju með próflok ef þið eruð búin,
og ég segji eins og svarthöfði í DV,
TIL HAMINGJU ÍSLENDIGNAR VIÐ ERUM HEIMSMEISTARAR!!!!!!
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 4:35 e.h.