fimmtudagur, desember 29, 2005
óskar var með smá pælingu, var Lottó á aðfangadag??
ég veit það ekki því ég var að halda upp á aðfangadag, ég er með smá hugmynd, ég held að það hafi verið lottó og sá sem var að horfa hann fær vinninginn ... smá aðeins verið að bregða útaf vananum, það eru örugglega alveg jafn miklar líkur á að einhver vinni ef Lottó er haldið svoleiðis á aðfangadag .... eða hvað?
allavega þá er ég búin að hafa það fínt um jólin, aðeins verið að vinna í bíóinu og svo líka pínku smá í flugfélaginu ....
ég ætla nú ekki að fara að "bore you" með því sem ég er búin að vera gera um jólin með einhverju details ... þó svo að mér þyki allt sem ég hef verið að fást við mjög skemmtilegt þá geri ég mér grein fyrir að ykkur finnst það örugglega ekki ...
ég er samt með eina aðra spuringu sem ég er búin að vera að pæla, hvort þætti ykkur góður húmor eða eiginlega bara asnalegt ef hún Unnur Birna fengi sér debet-kort með mynd af sér með kórónuna og borðann á því? (svona persónuleg kort sem allir eru með núna)
mér þætti það húmor .... :o)
en það er kannski bara skrýtna ég ...
eníhú sí jú leiter
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 6:00 e.h.
fimmtudagur, desember 15, 2005
vá ... ég er bara eiginlega alveg jafn gömul og ég er ... þrátt fyrir að ég sé eiginlega bara 17 ára .... hugsa sér ... ég verð 23 eftir ~52 daga (hugareiknaði, er því ekki 100% viss)
hugsa sér ...
You Are 23 Years Old |
Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe. 13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world. 20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences. 30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more! 40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax. |
og svo fyrst ég er að skrifa á annað borð þá get ég alveg eins sett þetta hérna inn í leiðinni,
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig...
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig...
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig...
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér...
5. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig...
6. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!
og svo líka svar við sp. 6 frá Lindu og Óskari
Linda
- já við erum enn saman, nei við erum ekki trúlofuð og eigum ekki von á barni
Óskar
- nei ég fer ekki mjög oft í bíó, ég er svo oft í vinnunni, og nenni eiginlega ekki í bíó þegar ég er ekki að vinna - og kemst ekki í bíó í vinnunni, því það er actually vinna að vinna í bíó en ekki bara að hanga inni í sal og horfa á myndirnar ... ;o)
og eitt enn fyrst ég er hérna ...
ég vil bara óska henni Unni Birnu til hamingju með titilinn Miss World, hún er óttarlega yndisleg stelpan, og var það alltaf þegar við unnum saman líka í Bíóborginni ... hún hefur bara sýnt það og sannað að hún var ekki að komast áfram á því hver mamma hennar er, heldur bara vegna þess hver hún er ... ég viðurkenni að ég hafði mínar hugmyndir um samsæri .. en hef nú ákveðið að éta það allt saman ofan í mig ...
og annað þá er ég mjög ánægð að hann Halldór Ásgrímsson hafi sent henni kveðjur fyrir hönd okkar allra!! mér finnst að fólk ætti að leggja til hliðar einhverja öfga feminsta skoðanir og hugsa um þetta sem jákvæðan hlut, því Unnur Birna, eins og fullt af stelpum í keppninni, eru ekki bara sætar heldur eru þær líka bráðklárar ... og það er það sem skiptir máli, hún Unnur Birna er okkur til sóma og mun standa sig - ég efast ekki um það ...
núna þarf ég, að fara að halda áfram að læra fyrir síðasta prófið mitt...
gangi öllum vel sem eiga eftir próf og til hamingju með próflok ef þið eruð búin,
og ég segji eins og svarthöfði í DV,
TIL HAMINGJU ÍSLENDIGNAR VIÐ ERUM HEIMSMEISTARAR!!!!!!
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 4:35 e.h.
föstudagur, desember 02, 2005
jæja nú er búið að klukka alla í heiminum nema mig, svo það er komið í tísku að klukka mig
here goes nothing
Sjö hlutir sem ég ætla að gera þegar ég verð stór:
1. eignast fallegustu börn í heiminum
2. gifta mig
3. fara til ástralíu
4. vera með í að flytja boot camp til hollywood
5. hitta Bono
6. komast á spjöld sögunnar (þ.e. vera í einhverjum skólabókum því ég er merkileg)
7. eiga nóg í mig og á
Sjö hlutir sem ég get gert:
1. Látið borðihljóð fara í taugarnar á mér
2. sofið mjög fast og sofnað fljótt
3. þagað yfir leyndarmálum
4. grátið yfir nágrönnum og öðru sjónvarpsefni og myndum
5. tekið 20 spretti að fyrsta púða á 55 sek (í boot camp)
6. verið mjög þver þegar ég tek mig til
7. get REYNT að sjá báðar hliðar á málinu
Sjö hlutir sem ég get ekki gert:
1. verð að segja eins og frænka mín > Skrópað án þess að fá samviskubit
2. finnast ekki ógeðslegar spírurnar á kartöflunum
3. látið sprauta mig án þess að kvarta MIKIÐ og vera skíthrædd -því það er VONT!!! (dæmi um að vera þver)
4. verið ekki hrædd um að það komi hákarl að borða mig ef ég er að synda í sjónum (en get samt alveg synt í sjónum)
5. horft á Bachelorinn eða Ástarfleyið án þess að fá kjánahroll
6. hætt að sakna WalMart
7. fundist vondur matur góður (allavega ekki ennþá)
Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
1. húmorinn
2. persónan
3. mojo-ið
4. eitthvað sem ég get ekki útskýrt :o)
5. (hef bara verið heilluð af Matta í svo langan tíma að ég hef ekki verið að spá í þessu, númer 1-4 passa við hann)
6. sjá 5
7. sjá 5
Sjö hlutir sem ég sé núna:
1. Fína tölvan mín
2. fína nýja skrifborðið mitt
3. fallega klukkan sem Matti gaf mér
4. skólabækur
5. armarnir á nýja fína stólnum mínum
6. stóra sjónvarpið sem pa og ma áttu um daginn
7. síðast en ekki síst nýji fallegi
BRATZ síminn minn sem ég elska!!!
Sjö orð eða setningar sem ég nota oft:
1. Doits
2. geturu unnið á morgun/um helgina (segji þetta mjög mikið í vinnunni)
3. já
4. ha?
5. Hvað er í matinn?
6. og núna undanfarna daga - "voðalega hringja fáir í heimasímann!" (vegna þess að mig langar svo að svara í fína Bratz símann minn)
7. JESSS!!! ÉG SKAAAAAL!! (alltaf þegar síminn hringir!!)
þá er það komið ... en eins og ég sagði í upphafi þá er búið að klukka alla í heiminum ... svo this one ends with me!!
allavega 1 próf búið og 3 eftir ...
wish me luck!
Hildur, 22 ára, stjórnmálafræðinemi OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 4:57 e.h.