miðvikudagur, nóvember 30, 2005
Ég ákvað að henda svona eins og einu bloggi hérna inn ...
Hvað segið þið um það ??
Sko ég gæti talað um mál málanna en ég veit ekki
Kannski bara smá punktar
Hr.Ísland à hvað er málið með að gleyma einum gaur!!! og er tilviljun að myndin af þeim sem vann kom TVISVAR SINNUM!?!?!?!?!?!?!?!?!? (tjái mig ekki meira um þetta)
Batsjelorinn à go Íris ... og annað ég hef oft verið að tala um að mér finnst skkrýtið þegar fólk er að kyssast eitthvað með tungunni svona fyrir framan mann .. en sko kjánahrollurinn fór úr öllu veldi þegar Jenný og herrann skelltu einum slíkum í myndavélina (ok ef þau vilja kyssast) og að það skyldi svo vera sýnt –over easy
Ástarfleyið à skemmtilegur þáttur; ákvarðanir ekki alltaf alveg eins og á væri kosið –en people do what people have to do
Takk sá sem fann upp vídjó-tæki ... því þessir þættir hefðu ALVEG farið fram hjá mér væri það ekki fyrir þessa kostagripi ... gat horft á þá seint um kvöldið þegar ég var að fara að sofa eftir lærdóm
Jæja, þá er fyrsta prófið að byrja á miðvikudaginn, og svo bara allt að verða crazy í prófalestri –áfram ég og allir aðrir sem eru í og eru að fara í próf
Bless í bili
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 12:15 e.h.
þriðjudagur, nóvember 22, 2005
Jæja ég var víst klukkuð .. hélt að ég myndi alveg sleppa við það ... þar sem ég reyni að vera svona "under the radar" ;o) ...
en here goes ...
#1-- Ég ÞOLI ekki hvótu spírurnar sem að vaxa á kartöflum þegar þær eru ekki alveg glænýjar, ég get ekki komið við þær eða horft á þær
#2-- Ég þoli ekki endalaus borði og drekki hljóð sem eru allt of há
#3-- Ég verð ekki hrædd þegar ég fæ blóðnasir (kemur reglulega fyrir, síðan ég var svona 8 ára - hef látið brenna fyrir nokkrum sinnum)
#4-- Ég kem aldrei við (og nota aldrei) handblásara á almennings salernum OJ!
#5-- Ég er alltaf með .... hmmm ég er að hugsa .... sko ég er oftast með lyklana mína held ég barasta ... og kannski ilmvatnið mitt ... það kemur fyrir að ég gleymi símanum mínum (er að verða meðvitaðri um að muna eftir honum) ... já ég ætla að segja lyklana mína (þó það sé ekki ALLTAF ALLTAF)
jæja ég vona að ég hafi fullnægt mínum klukk skilyrðum ... og vegna þess að hún Vala hefur svo gaman að því að lesa síðuna mína ... og hún skrifar ALDREI neitt á sína ætla ég að klukka hana ...
en Vala ef þú ert búin að hætta að skrifa á þína síðu bara svona alveg og almennt þá ætla ég ekki að klukka þig .. ég er ekki algjör (___)
Hildur OUT ...
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 12:25 e.h.
mánudagur, nóvember 21, 2005
Ok nú er bara OF mikið að gera ...
Mikið er ég þakklát fyrir hvað ég er búin að vera dugleg að lesa í vetur, en þrátt fyrri þann dugnað er samt sem áður langt í land ... og því er ég um það bil að drukkna núna ... fjúkk hvað ég hlakka til þegar ég geng út úr síðasta prófinu ... það er nú samt langt í það .... en samt svo stutt –eiginlega of stutt – doits maður
Jæja ég ætlaði að segja ykkur skemmtilega sögu af læknum í Ameríku og svo læknum í Evrópu ... en ég held ég geymi það ...
Eða nei annars ég hef tíma í eina sögu svo er það aftur í ritgerðina mína sem ég ÆTLA að skila á miðvikudaginn *YES I CAN*
Allavega þá var hún Kirsty vinkona mín frá Skotlandi með eitthvað skrýtin útbrot á fótunum sínum úti í Ameríkunni ... mjög furðuleg –eins og skordýrabit með sýkingu í ... en samt voru það ekki bit ...
Allavega þá fór hún til læknirins í Ameríku, og læknirinn gaf henni alltaf einhver sýklalyf og hún fékk alltaf meira og meira af lyfjum og aldrei fór þetta af fótunum hennar ... hún fékk bara nokkur í viðbót og alltaf lét læknamaðurinn hana fá fleiri pensilín og sagði alltaf að hún yrði að taka fleiri og fleiri töflur...
Svo kom hún heim til sín til Skotlands ... og þetta hélt áfram að koma á fótana hennar svo hún fór til læknis sem sagði henni að þetta myndi bara lagast ... lá við að hann segði “walk it off”
Æ mér fannst þetta bara fyndið ... hvernig munurinn er á milli landa ... það er eins og hérna heima ... þegar einhver fer til læknis og heldur að hann sé við dauðans dyr fer hann út með enga veiki og ekki neitt ... kannski í mesta lagi sagt að það séu vaxtarverkir eða eitthvað svoleiðis ...
Það er samt eitt sem að vakti athygli mína í útlöndunum og það er að
i Ameríku og Skotlandi er fólki ekki bent á að pensilín og svoleiðis “eyðist út” með áfengi –en það er sagt á íslandi og næstum allir sem ég þekki og veit um hlýða þeim fyrirmælum samviskusamlega –skrýtið
... kannski virkaði pensilínið ekki vegna þess að hún fékk sér áfengi –ég veit ekki – hún trúði mér amk ekki þegar ég sagði við hana að hún ætti að prófa að taka þau og ekki fá sér neitt áfengi á meðan ...
Hvað ætli sé satt og rétt í þeim málum? Eru læknar á Íslandi að reyna að fá fólk til að drekka minna –eða vita læknar í útlöndum ekki af þessum áhrifum (kannski gleymdi Kirsty bara alltaf að heyra í lækninum þegar hann sagði það við hana –það kemur stundum fyrir hjá henni)
Jæja farin í skriftir aftur ... JIBBÝ!!!
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 2:46 e.h.
mánudagur, nóvember 07, 2005
Á fyrsta degi jóla gaf kærastan(/inn) mín(/inn) mér RIISSA STÓÓÓÓRAAAANNN BJÓ#!!!
nei mér datt þetta lag bara í hug, allt í einu fór ég að raula þetta upp úr þurru þar sem það er svo "stutt" í jólin ... stutt er greinilega mjög afstætt hugtak svona eins og aldur og fyrri störf.
Mér finnst ekki mjög stuttu til jóla og því frekar snemmt að fara að auglýsa svona mikið og hafa allt þetta jólaskraut í kringlunni, hagkaup og Ikea (guð má vita hvar það er annarsstaðar) -ég kemst svo sjaldan út að ég veit bara um þessa staði. Reyndar tilkynnti mamma mér um Ikea þann FIMMTÁNDA OKTÓBER!!!!!!!!!! og já alveg rétt líka Blómaval, ég man það núna ...
Kommon ma´r 15.okt er það ekki fullsnemmt ... það er í lagi fyrir búðirnar sko að fara að huga að jólaskrauti um þann tíma -en þá þannig að fara að leita að því og þrífa það eða panta eitthvað nýtt ... það væri ekki gaman að þurfa að standa í því of seint.
en í sjálfu sér svo þegar ég fer að pæla í því út frá mér prívat og persónulega er ALLTOF stutt í jólin ... sko það eru bara akkúrat 24 dagar í síðasta kennsludag og það eru þá bara um 3 vikur ... eða 13 kennsludagar (er í fríi á föstudögum) shitturinn titturinn sko ég er ekki alveg að meika það ... ég er reyndar búin að vera dugleg að lesa þessa önn -eiginlega framúrskarandi dugleg (eða næstum því amk) og bara búin að missa 3 kennsludaga úr vegna óviðráðanlegra aðstæðna. og mér finnst sá árangur alveg æðisgengilegur. En það er STUTT eftir og þar af leiðandi stutt til jóla ... er ekki óþarfi hjá búðamönnunum að byrja að skreyta svona fljótt og stressa þá háskólafólk upp úr öllu valdi því skrautið minnir ekki endilega á hátíð ljóss og friða heldur bara próf og prófalestur
prófalestur er kannski bara smá eins og hátíð ljóss og friða ... þ.e. það er ljós hjá okkur allan sólarhringinn því við erum að lesa myrkranna á milli (það er ekki svo langt á milli myrkranna) og við viljum hafa frið ... þetta er kannski engin hátíð -en venja og kannski hefð alveg eins og jólin ... og í endann á öllu þessu stressi -þ.e. þegar stressið eftir prófin er búið líka (það er ekki minna stressandi að þurfa að undirbúa jólin á 2-3 dögum -er reyndar búin að kaupa eitthvað af jólajóla en samt) þá loksins fáum við stund milli stríða til að setjast niður og slappa af með familíunni.
ég er ekkert jólabarn í mér, en jóladagur er samt yndislegur dagur ... og kannski líka e.kl. 6 á aðfangadag – það er allt “fössið” fyrir jól sem gerir mig að “ekki-jólabarni”
æ ég er alveg búin að missa mig í þessu jólarugli eitthvað
þannig að ég enda þetta bara hér og nú
jóla hvað!!!???!!!
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 12:28 e.h.