mánudagur, febrúar 21, 2005
Halló halló,
ég vil byrja á tveimur hamingjuóskum;
#1 Arna Margrét frænka mín er loksins orðin 19 ára, og þegar mann er 19 ára er bara eitt ár í að mann verði 20 ára svo að það er stór viðburður að verða 19 ára,
til hamingjum með afmælið frænka!
(hún átti sko samt afmæli 16.feb ég gleymdi bara að skrifa til hamingju þá! -fyrirgefðu Arna mín!)
#2 Þá er hann Unnar Steinn vinur minn að verða pabbi í apríl, innilega hjartanlega ótrúlega til hamingju með það Unnar minn! Það er frábært og ég veit að þú verður góður pabbi! ;o)
og fyrst ég er að óska fólki til hamingju þá vil ég líka nota tækifærið og óska honum Viktori til hamingju með það að hafa farið í fallhlífarstökkk og tvö teygjustökk! Til hamingju!
og svo að mér ...
... ég fór í klippingu (eins og þið kannski vitið) og það var nú ekki svo dýrt 41$ það er ekkert svo mikið (uþb 2500 kr.) ...
ég verð að segja að ég er ekkert ósátt, ég er svo vön að fara til hans Fannars og fá nýjustu klippingarnar og vera með hip og kúl klippingar (síðasta klipping sem ég var með hét *punk-romaticism*) en núna er ég bara með venjulega klippingu, konan notaði meira að segja þynningarskæri í hárið mitt!! (velkomin aftur til 20.aldar!!!) ég held að það hafi ekki verið notuð þynningarskæri í hárið mitt síðan -ja bara síðan síðast!
venjulega þegar ég fer í klippingu til Fannars tekur það mig svona nokkrar sek - 1 mín að venjast nýju klippingunni ... en ég fór í þessa á föstudaginn og er eiginlega ennþá að venjast henni ... en klippingin sem slík er ágæt, hefði bara verið skemmtilegra að vera með hip og kúl klippingu -en ég er góð og venst henni örugglega fljótt ... vonandi (krossum fingurnar)
um helgina fór ég að borða á kínastað sem heitir Great Wall og er ekkert smá góður, þetta er svona "all you can eat buffet" og þar er besti kjúklingur í veröldinni NAMMI NAMMI NAMM hann heitir Shanghai Kjúklingur og er bestur ... amk besti kjúklingaréttur sem ég hef smakkað!
svo var ég bara heima að lesa og horfa aðeins á sjónvarpið -meira gerði ég nú ekki um helgina ...
fyrst ég er að óska fólki til hamingju þá get ég óskað henni Þorbjörgu minni til hamingju með það að vera flutt að heiman!! Til hamingju og nota tækifærið í leiðinni að óska Ingu til hamingju að vera komin með roomie!
en í dag er ég að fara í danstíma til að læra rullu sem við þurfum svo að dansa í næsta tíma (það er midterm -prófið okkar) og svo þarf ég líka að læra upphitunina utanbókar ... doits mann ég er ekki dansari og ef ég þyrfti að dansa fyrir framan spegilinn (stend sko alltaf aftast) þá myndi ég örugglega hætta! og í síðasta tíma átti ég mjög skemmtilegt samtal
kennarinn yfir bekkinn: Hildur are you from Iceland?
ég: yes
kennarinn: may I tell the class how I figured out that you are from Iceland?
ég: mmm yes (og var ekki að fatta neitt)
kennarinn: HER MIDDLE NAME IS BJORK -I MEAN HOW COOL IS THAT!!!!!
einstaklega skemmtileg saga ;o)
jæja þá er best að fara að halda áfram að læra fyrir prófið á morgun, ég lofa að setja inn myndir í þessari viku, ég á nokkrar núna og ég get jafnvel fleygt inn einni af nýju klippingunni minni ...
adios amigos
Hildur OUT!
ps. takk fyrir hugreystinguna Aldís mín (í síðasta kommenti)! *mmmwwa*
pps. Já Diljá ég skal skila kveðjunum fyrir þig, en ég hef heyrt að þeir séu svo busy að reyna að finna út hvar ég á heima til að halda suprise party fyrir mig -þess vegna hafa þeir ekki hringt en næst þegar ég tala við þá skal ég minna þá á að hringja, allavega senda sms (en ekki gleyma tímamuninum! ;o) they wouldn´t want to wake you up!)
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 9:04 e.h.