fimmtudagur, janúar 13, 2005
Jæja allir saman, loksins komin í íslenskt lyklaborð and daradadada I´m loving it ... :o) það er mjög indælt, og loksins er ég komin með það aftur sem ég myndi að sumu leiti kalla dópið mitt -internetið ... ég á líka annað dóp en ég fæ það ekki live í amk 121 dag -það er Mattinn minn ..
ég er komin með herbergi á heimavist og þó að allt annað sé eins og í amerískum bíómyndum, þá eru herbergin ekki alveg eins, þau herbergi sem ég er að miða við eru herbergi hinna nemendanna sem eru komnir hingað í gegnum ISEP ... öll herbergin hafa sína kosti og galla -minn kostur er sá að það eru aðeins 2 herbergi sem deila baðherbergi -þ.e. í endanum á mínu herbergi er klósett og það er tengt við annað herbergi ... en herbergið er ekki mjög stórt og skápurinn er ekki mjög stór en baðherbergið er STÓR plús .. .hin hernergin eru aðeins stærri en mitt og skáparnir eru með mjög mikið pláss í þeim, en hinir deila baðherbergi með 13 öðrum herbergjum eða eitthvað svoleiðis ... það eru 3 sturtur og 4 klósett fyrir um það bil 13 herbergi ... mér finnst það STÓR mínus ... þannig að það eru allir tiltölulega sáttir ..
ég hef ekki ennþá hitt herbergisfélagann minn ... hún kom aðeins heim í dag en ég missti af henni -vona að hún sé fín stelpa *krossa fingurnar*
annars hefur þessi 8 manna hópur náð mjög vel saman, og við höfum haft það mjög skemmtilegt saman, það eru 2 strákar frá Hollandi, Pieter og Bart, og svo eru 2 stelpur frá Suður Kóreu, NaRa og Su You Kim (en hún vill láta kalla sig Ashley), svo er ein stelpa frá Skotlandi, Kirsty og kærastinn hennar er með henni fram á Sunnudag, því hann er að fara í vinnuþjálfun í Florida og hann verður meira eða minna þar svo hún er heppin, því það er ekki svo langt að fara, hann heitir Grant, svo er einn strákur frá Svíþjóð og hann heitir Alex (eiginlega heitir hann Alexander, en við köllum hann alltaf Alex)
og krakkarnir frá skólanum sem hafa verið að sýna okkur "around campus" og bara farið með okkur um allt er aðallega Alan, og svo Mike og Niel, og Abby, og svo hittum við eina í gær hún heitir Sabrina ...
það er ótrúleg hvað allt er amerískt hérna, ég er komin með amk 2 mjög týpískar amerískar sögur, en ég er alveg að sofna á lyklaborðið, svo að ég mun segja ykkur frá þeim seinna ... klukkan hjá mér er núna 06:38 um nóttina hjá mér (06:38= íslenski tíminn og nótt er minn tími ... so get used to these terms -ég mun líklega nota þetta frekar mikið, að segja íslenska tímann og hvaða tími dags er hjá mér ... )
jæja snúlludúllur ... núna er hún Hildur ykkar að fara að sofa ... sí jú sún ...
ps. á morgun er ég að fara til N´Oleans ... þannig að ég skrifa kannski hinn daginn ...
Hildur OUT!!!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 6:26 f.h.