miðvikudagur, janúar 19, 2005
hæ allir saman,
sorry hvað er langt síðan ég skrifaði ... það eru í raun engar afsakanir nema hvað ég er búin að vera upptekin ... núna eru samt hlutirnir farnir að róast aðeisn svo það er gott -það er að komast rútína á hlutina því skólinn byrjaði í gær
ég verð eiginlega að byrja á því að mótmæla!
ég kom hingað til að fara í gott veður og nú er ég búin að vera hér í 12 daga (vá 12 daga spáið í því) og veðrið er búið að vera ekki gott ... það er búið að vera 11°c í svona 4 eða 5 daga í röð! er það eðlilegt -NEI! og 11°c hérna er bara mjög svipað og ísskáparnir heima -við erum að tala um að í dag þegar ég fór í skólann þá var ég er bol, síðermabol, renndri peysu, jakkapeysu og gallajakka og með trefil og það var samt hrollur í mér! ég er ekki sátt í bili! en mér er sagt að þetta verði bætt -ég hlakka til þess og ef það stenst ekki vil ég fá endurgreitt! þetta er náttúrulega bara röng auglýsing -í augnablikinu virðist ég bara hafa verið blekkt í að koma hingað! (og þegar fólk er blekkt eins og þetta þá fær það amk einhverjar skaðabætur!)
já ég mótmæli og við öll sem komum hingað -þetta er sko ekki sanngjarnt!
ég læt ykkur vita ef afstaða mín breytist ...
sagan sem ég hef handa ykkur-
ég fór fyrsta daginn minn í moll og þegar þangað var komið ákvað hópurinn að fá sér að borða, og við fórum á einhvern samlokustað og strákarnir fengu sér samlokur en ég ákvað að fá mér bara lítinn skammt af frönskum og lítinn djús ... og ég í sakleysi mínu pantaði
ég: "I´ll have one small fries and a small juice"
afgreiðslumaðurinn: "and do you want fries with that?"
úff það var svolítið erfitt að halda andlitinu -því hópurinn var nýbúinn að tala um hvað allt væri amerískt og fyndið ... og svo lendi ég í þessu! vó þetta var bara fyndið sko ...
og svo annað -ég var í Wallmart að kaupa helstu nauðsynjarnar, eins og sæng og kodda og þvottaefni og handklæði og ýmsar aðrar nauðsynjavörur og svo vantaði mig líka lampa til að hafa á borðinu mínu í herberginu og ég spurði Alan strákinn sem er héðan og var að sýna okkur um allt áður en skólinn byrjaði
(til að sagan skiljist betur verðið þið að lesa þetta eins og það stendur)
ég: "Alan where could I find a lamp?"
Alan: "a what?"
ég: "lamp"
Alan: "sorry what are you looking for?"
ég: "a lamp to put on my desk!"
Alan: "oh a LEEEMP"
hann gat ómögulega skilið hvað ég var að biðja um!
það er alveg hreint magnað hvað mann þarf að segja hlutina nákvæmlega við ameríkana svo þeir skilji hvað mann er að meina ...
heyriði ég verð að fara að kaupa bækur núna ....
minnið mig svo á að segja ykkur frá ameríska dinnernum mínum
og svo fer ég að sitja inn myndir frá N´Orleans ...
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 8:57 e.h.