þriðjudagur, desember 28, 2004
hæ hæ,
ég veit að ég er ekki farin út -en ég hef nú kannski eitthvað smá til málanna að leggja þó það sé kannski ekki ýkja mikið, þá er það alveg örugglega þess virði að deila með ykkur -mínir tryggu elskandi lesendur :o)
jólin mín voru alveg ótrúlega góð -ÓTRÚLEGA! góður matur, en í fyrsta sinn síðan ég fæddist held ég að það var ekki toblerone ís -en það var svo skrýtið að ég eiginlega gleymdi því -vegna þess að við borðum alltaf ísinn eftir að við opnum pakkana og þessi jól vorum við SVOOOO lengi að opna pakkana að annað eins hefur varla sést -það var sko sannkallað pakkaflóð, ég féklk mjög mikið af fallegum hlutum
bleikt úr
bleika peysu með hettu
bleika jakkapeysu
bleik náttföt
bleikan hitabrúsa
bleika tösku
fallegasta ljóð í heiminum -samið BARA FYRIR MIG!!
OG FULLT FULLT Í VIÐBÓT ... ef þið viljið vota meira þá látið þið mig bara vita
og ég segi ykkur það með glöðu geði :o)
en það skeði smá slys fyrir jólin á 22.des -sem varð til þess að lyklaborðið á tölvunni minni var bilað, greyið Luc eyddi öllu jólafríinu sínu á Íslandi að reyna að laga fyrir mig -ótrúlega góður! en ekkert virtist ganga neitt fyrr en loksins í gær að við gátum loksins tengt annað lyklaborð við og komist inn -nú er ég að vinna og so á eftir þá ætla ég heim að SKRIFA ALLT sem er í tölvunni minni allt allt allt -doits ég var smá hrædd á tímabili að allt væri bara ónýtt og ekkert hægt að gera
fjúkket hvað ég er ánægð að svo er ekki
en ég er búin að fá 2 af 5 einkunum og gekk bara ágætlega ef ég á að vera alveg hreinskilin -meðaleinkunin mín hækkaði alla vega eitthvað -vonandi lækkar hún ekki með næstu 3 einkunum, vonandi fer hún bara hækkandi eða amk ekki lækkandi *cross my fingers*
já ljóðið sem ég fékk í jólagjöf var svo sætt -það eru fjórar línur og ég las það upphátt og ég og mamma (grenjuskjóðurnar) vorum alveg að fara að gráta -gátum ekki talað í nokkrar mínútur eftir .... sho shætt
það verður sko tekið með til úttlandanna í janúar´..
sem er by the way eftir rúmlega 9 daga (tel daginn í dag ekki með því hann er hálfnaður og tel eiginlega ekki brottfarardaginn með vegna þess að ég fer í loftið 07:50 en Matti fer í loftið 07:35 ... þannig að ég fæ að hafa hann hjá mér alveg aþr til ég fer -hann verður með mér í fríhöfninni .... úff ég er alveg að fara að gráta eins gott að hætta bara á meðan ég sé út úr augunum -væri aðeins verra að vera snöktandi þegar ég er að tala við viðskiptavinina í símanum
ég: "flugfélag ís*snökt*lands góðan daginn *snökt snökt*"
það væri nú ekki par sniðugt (par sniðugt eins og par ánægður, er það ekki til?)
erum við að tala um flash back lagið um Notorius BIG "I´ll be missing you" er í græjunum -í útvarpinu sko ... á Mix FM (halla var að informa mig) og lára er að BRILLERA í söngnum :o) það er svo gaman hjá okkur ...
en eigum við að ræða þreytu eitthvað? ég er svolítið sybbin sko -en ég hef ekki tíma í það eiginlega
í dag þegar ég er búin að vinna (eða í dag-það er kl.19 þannig að það er kannski ekki mjög mikill dagur þá) þá ætla ég heim að tæma tölvið mitt
og svo ætla ég að horfa á nágranna eitthvað og á morgun er mjög mikilvægt að ég horfi á eitthvað að Sex and the City -ég nebblega fékk allar seríurnar í jólagjöf frá mínu heittelskaða bíói
ég fékk líka mjög flotta íþróttaferðatösku og flugbók frá flugfélaginu
-já krakkar mínir það borgar sig að vinna ...
jæja ég held ég hætti í dag ...
bless í millibili
veit ekki hvenær ég kem aftur kannski 7., 8., eða 9. jan eða fyrr
bless á meðan
og gleðileg áramót ef ég kem ekki fyrir áramót aftur
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 11:34 f.h.