laugardagur, september 18, 2004
Jæja , hvað get ég sagt ykkur skemmtilegt?
mmmm.... ég hef bara nákvæmlega ekki neitt að segja
ég fór að passa litla Bjarka Dag um daginn og Melkorku Nótt stóru systur hans ... þau eru svo sæt að ég gæti bara knúsað þau allan daginn - skemmtileg saga ;o)
ég nenni ekki einhverju svona "ég fékk mér að borða og fór að læra" rugli - það gera það allir og það er ekkert skemmtilegt að segja frá því.
Jú ég get sagt ykkur eina svolítið skemmtilega sögu, sem er kannski ekkert svo skemmtileg því hún minnir mig bara á það hvað ég er að verða gömul ... þetta gerðist bara núna fyrir jól í fyrra -eða kannski um haustið.
Þá kom einn strákur (um það bil 10 ára) til mömmu sinnar og hélt á hljómplötu hann spurði mömmu sína hvað þetta væri og hún sagði honum að þetta væri plata -svona hljómplata og spurði hann jafnframt hvort hann vildi hlusta á hana og hann sagði já. Svo fór hann inn í stof og kallaði stuttu seinna á mömmu sína og sagði "MAMMA platan passar ekki" og hún sagði jú hún passar alveg, og fór inn í stofu - þá sá hún að strákurinn var að reyna að koma henni í geislaspilarann!!!
Það var einn samnemi minn sem sagði mér þessa sögu, og hann sagði mér jafnframt að þegar hann hefði heyrt þessa sögu hefði hann spurt stelpuna sína (12 ára) hvort hún vissi hvað hljómplata væri. Hún sagði já, hún vissi það alveg og útskýrði fyrir pabba sínum hvað það væri - og hún hafði alveg rétt fyrir sér. Þá spurði hann hana hvernig hún vissi hvað hljómplata væri - þá sagði hún ÉG LÆRÐI ÞAÐ Í SÖGUTÍMA Í SKÓLANUM!!!!
þegar ég var alveg upp að 12 ára aldri -amk 11 ára- var ég ennþá að hlusta á Mini-Pops á plötum í plötuspilaranum hérna heima og ég var ekkert sú eina - ég og Svana vinkona mín hlustuðum mikið á plötur, Grease og Mini-Pops og miklu fleira! Þá vorum við 12 ára!!! En í dag veit enginn hvað eru plötur - nema það sé kennt í skólanum - og ekkert bara svona almennt - heldur í sögu tíma!!
ég get ímyndað mér hvernig sá sögutími er
Kennarinn:"jæja krakkar mínir svona fann hann Ingólfur Arnarson Ísland.... Og nú snúum við okkur að nýju efni .. í ELDGAMLA DAGA - fyrir langa langa langa löngu síðan þegar það voru ekki einu sinni til geilsadiskar og gígabæt - þá hlustaði fólk á hljómplötur og átti sérstaka plötuspilara ...." svo sýnir hann mynda af fólki og okkar aldri og segir "já þetta gamla fólk hlustaði á hljómplötur - þá áttu ekki allir geislaspilara og geilsadiska -nei þau hlustuðu á hljómplötur og tóku upp á kassettur!"
OH MY GOD! I AM GETTING TOO OLD!
Hildur OUT!
ps. ef það er einhver þarna úti sem er með MSN og vill hafa mig á lista hjá sér þá er msn-ið mitt hlidurpals@hotmail.com
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 2:59 e.h.