......
....
...
..
..
..
......
....
...
..
..
..
föstudagur, ágúst 06, 2004
Jæja þá er komið að því ... nú er hún Hildur ykkar að fara að skrifa smá eftir LAAAAAANGAAAAA pásu ... pása smása ... ég er búin að vera að læra like mofo, því ég er jú eins og hún vala mín benti ykkur á, að fara í sumarpróf núna í ágúst,
Fjúkk hvað ég er búin að vera busy, en ég var samt sem áður ekki of busy til að taka við alveg svona líka æðislegum vinningi frá FM957,
við það er að segja ÉG vann í LAGER leiknum of fór í 5 daga til Vestmanna Eyja á þjóðhátíð, við fórum á miðvikudegi og komum til baka á mánudegi, 16 manns gistu í einu stóru plássi allir á dýnum á gólfinu ... það mynduðust alveg sérstök bönd á milli okkar við erum eins og ein stór fjölskylda, úff það er alveg ótrúlegt hvað það var mikið fjör miðað við allar aðstæður,
aldrei hefði ég trúað því að það gæti gerst en nýju vinir mínir heita
Alma nylon, Hildur nr.1, Sigga Handfrjálsa, Ásgerður Íþróttaálfur, Ragnar Flugstjóri, Sigrún Sæta, Helga Litla, Pétur Bakari, Bjössi Pabbi, Junior Litli, Rakel mamma, Harpa fermingarstelpa, Arna vinkona hans Tryggva og Tryggvi Trausti (svo voru ég og Matti)
Hér getið þið séð eitthvað af myndum en bráðum ætla ég nú að finna mér tíma til að setja myndir hér inn hjá mér
já það var rosalegt ... allur bjórinn sem var drukkinn. – ja og ekki drukkinn, við fengum 28 kassa og það voru 7 kassar og 23 bjórar eftir á mánudeginum ...
við fórum í einkavélum til Eyja því þyrlan var biluð, æ já það var mjög skemmtilegt gaman að hafa eignast svona marga nýja vini, svo ætlum við vonandi að hittast fyrir Pink tónleikana og líka 50 cent tónleikana sem við ætlum að fara FRÍKEYPIS saman á því við unnum öll miða á þá líka ... fjölskyldan saman á ný, á myndunum á mbloggi FM957 sem að er linkað hér að ofan, getið þið séð myundir af foreldrum LAGER fjölskyldunnar, Það er hún Rakel mamma sem er að flassa með Fugli 3000 og pabbi okkar er þarna á myndunum bæði í Djöfla búningum OG ballerínu brúðkaupsbúningum ... þessir foreldrar eru kannski svolítið lýsandi fyrir fjölskylduaðstæðurnar í Eyjum þessa 5 daga ....
það gerðist svolítið á mánudaginn eftir að við komum heim frá Eyjum, ég fór að vinna um leið og við komum heim og svo þegar ég var búin að vinna þá fór ég heim og við matti fórum að horfa á vídjó – við héldum að það gæti verið svol´tið góður afréttari að fá okkur einn bjór saman fyrir svefninn .. .kúpla okkur hægt út úr 5 daga stanzlausri bjórdrykkju ... og við fengum okkur einn kaldan .. og það sem hefur aldrei gerst áður getur alltaf gerst aftur – við helltum bjórnum eftir að við fengum okkur sitthvorn sopann – áíkasáí hvað það var ógisslegt ullabjakk en við eum komin yfir þetta og gátum með fóðu móti drukkið einn bjór saman í gærkveldi eftir lærdómsmikið kvöld ....
ég er búin að læra svo mikið í sumar að ég held að ég ætti bara að taka stöðupróf og þá fengið ég bara BA-gráðuna mín gefins –áíkásáí hvað það væri nú gaman!
Nei krakkar mínir það er nú enginn barnaleikur að vera í Háskólanum Íslands, manni er barasta hent út í djúpulaugina .. eða meira frekar svona hent í úthafið, ekki örvænta -þið sem hafið hugsað ykkur að fara í háskólann- það er erfitt að vera í háskólanum mann þarf að læra að læra upp á nýtt, sérstaklega þeir sem hafa komist sem borandi nefnemar í gegnum skólann alla sína tíð ... en það er samt mjög gaman að vera í Skólanum Há, eða það finnst mér .. ég verð bara að gera mitt besta núna þegar ég er ein eftir í Stjórnmálafræði – æ ég hlít að geta þetta , er það ekki bara ... ég VERÐ ef ég ætla að komast til úttlanda í Janúar
Jæja þá ætla ég nú að fara að vinna og læra .... við skulum bara vona að það líði ekki svona langur tími þar til það gerist eitthvað skemmtilegt næst .. er það ekki annars nýji dílllinn – að ég skrifi þegar ég geri eitthvað skemmtilegt?
Ætli það verði ekki pink tónleikarnir og 50 cent tónleikarnir næst...
Bloggið mitt væir bara kattleiðinlegt (ekki hudnleiðinlegt því það er ekki eins leiðinlegt og kattleiðinlegt því kettir eru mun leiðinlegri en hundar og það er bara staðreynd)
Jæja NÚNA ætla ég að fara að halda áfram að vinna og láta mér svo batna.. því ég er ennþá með smá Eyjaveiki ... kvef og hálsbólgu ... æ það er í góðu lagi
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 4:35 e.h.
......
....
...
..
..
..
......
....
...
..
..
..
ONE
# ONE-auglýsingin
spjallið
það er/u...
að skoða núna
skap dagsins
I do know Schitt!
Schitt happens!
Many people are at a loss for a response when someone says,
"You don´t know Jack Schitt".
Jack is the only son of Awe Schitt and O.Schitt.
Awe Schitt, the fertilizer magnate, married O.Schitt,
the owner of Knee-deep Schitt, Inc. In turn, Jack Schitt married
Noe Schitt and the prolific couple produced 6 children: Holie Schitt,
the twins Deep Schitt and Dip Schitt,
Fulla Schitt, Giva Schitt and Bull Schitt,
a high school dropout. After beeing
married for 15 years, Jack and Noe divorced.
Noe later married Mr.Sherlock and because of her
kids were living with them, she wanted to keep her
previous name. She was known as Noe Schitt-Sherlock.
Dip Schitt married Loda Schitt and they produced a cowardly son,
Chicken Schitt. Fulla Schitt and Giva Schitt were
inseperable through childhood and consequently married
the Happens brothers in a dual ceremony. The Schitt-Happens
children are Dawg, Byrd, and. Bull Schitt, the prodigal son,
left home to tour the world. He recently returned with his new bride,
Pisa Schitt.
Now when someone says you don´t know Jack Schitt, you can correct them!!!
leit
gamalt efni
febrúar 2004mars 2004apríl 2004maí 2004júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005maí 2005júní 2005júlí 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006febrúar 2006mars 2006apríl 2006maí 2006júní 2006júlí 2006september 2006
Free polls from Pollhost.com |
Powered by TagBoard Message Board
|