sunnudagur, júlí 04, 2004
já elsku beautiful vinir mínir núverandi,fyrrverandi og tilvonandi, í dag er MJÖG merkilegur dagur ...
4.júlí, sem eftir ár verður vonandi partly minn þjóðhátíðardagur
og úrslitaleikur EM2004
og síðast og ALLS EKKI síst, METALICCA tónleikar
þar sem þetta eru síðustu tónleikarnir þeirra á þessum túr hafa þeir sagt að þeir ætli ekki að líta á þetta sem vinnuna sína heldur fyrst og fremst skemmta SJÁLFUM SÉR!! Þannig ég og hinir 17.999 áhorfendurnir eigum eftir að upplifa eitthvað einstakt og merkilegt ... spáið í því 18.000 manns! Það er svolítið stór prósenta af þjóðinni ....doits ... ætli þeir hafi einhvern tíma spilað fyrir svona stóra prósentu af einni þjóð eins og þeir eru að fara að gera í dag (miðað við höfðatölu)? Ég hreinlega efast um það ....
en það er bara allt að gerast á íslandi, EMINEM bara að koma, afhverju er hann ekki að koma einn eða D12, Gunit er ekki alveg að meika það .... erfitt að borga morðfé til að sjá EMINEM sem mun kannski syngja með í einu til 2 lögum, væri þá ekki bara vissara að kaupa sér miða til L.A og biðja hana Katrínu að finna hann fyrir mig og hitta hann bara í persónu
"yea"
ég held að það sé bara málið ... fara í borg englanna og hitta allt þetta fræga fólk, kannski gæti ég líka hitt leikarana í Bold and the Beautiful og fengið mynd og eiginhandaráritanir fyrir hana mömmu mína ... jafnvel fengið eitthvað design frá Forrester...þá yrði ég sko landg uppáhaldsbarnið hennar mömmu minnar, ég er náttúrulega uppáhalds en þá yrði ég lang alveg
ég fékk eina kvörtun í gær að ég skrifaði aldrei á síðuna mína, en ég hef bara aldrei tíma –svo segir aldrei neinn neitt þannig að það er engin pressa á að skrifa ...
ég vinn mjög vel undir pressu endilega BRING IT ON!
jæja þá ætla ég að koma mér aðeins niður á jörðina á þessum frábæra degi, og fara að lesa aðeins í bókunum og skella mér svo í sturtu og fara svo á tónleika ársins
veriði hress ekkert stress bless
Hildur OUT!
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 1:04 e.h.