föstudagur, apríl 09, 2004
Tónleiks
SYKURSGELLURNAR ERU MERGJAÐAR!!!
ok við; ég, anna og ásta, vorum næstum því farnar að kalla þær sucker babes, útaf því að við þurftum að bíða ENDALAUST ég held að það hafi liðið rúmur hálftími frá því að upphitunar hljómsveitin hætti, þar til þær byrjuðu, og ljósin voru slökkkt allan tímann, þannig að það leit ekki út fyrir að þetta væri hlé .... við vorum ÞREYTTAR ? FÓTUNUM!!! (sérstaklega ásta og anna, þær voru í hælum, ég skipti áður en ég fór á tónleikana)
og við vorum orðnar svo pirraðar að þetta átti að vera eina sagan sem við ætluðum að segja, en það breyttist nú samt þegar þær voru komna á svið!
til að byrja með var einhver plötusnúður, hann var bara, æ ég hef enga skoðun á því hvað hann var...
svo kom hljómsveit sem heitir sleggjurnar og er frá höfuðstað norðursins, þeir tóku 7 eða 8 lög og þetta voru svona típiskir íslenskir rapparar, þó betri en rottweiler, ekki að rottweiler séu góðir.... (höfða ekki beint til mín, þó ég geti hlustað á þá í útvarpinu)
anna katrín kom og söng eitt lag með þeim, hún sagði ekki hæ við áhorfendur, söng smá sýnishorn, ekkert spes, og svo fór hún bara, það heyrðist ekkert í greyið stelpunni ... þannig að þetta var hálfgert flopp...
en við söknuðum þess að sjá ekki Kalla Bjarna, það var hluti af verðlaununum að fá að hita upp fyrir
SUGABABES en hann kom ekki ... mamma var að segja mér rétt í þessu að það var vegna þess að það náðust ekki samningar...
en þegar hljómsveit stelpnanna kom á sviðið, þá varð allt VITLAUST í húsinu, hljómsveitin sem var GÓÐ!!! þeir eru allir mergjaðir tónlistarmenn....geggjaðir
og svo loksins komu þær á sviðið, þegar hljómsveitin hafði spilað eitt lag ... og þá fyrst ætlaði húsið að springa! já springa, það voru öskur og læti fyrstu 2 lögin, það var rosalegt....
þær eru SVO góðar söngkonur að það er alveg ótrúlegt, ég bjóst ekki við því að þær væru svona góðar, það heyrðist að þetta var "í beinni" og þær voru svo góðar, svo góðar að ég á bara ekki til orð...
það er mjög gaman að hafa séð þær "í beinni", en samt svo skrýtið... þær eru 19, 20 og 21 (´85, ´84, ´83)
ég hef séð þær í myndböndum og svoleiðis, en það er ekki fyrr en ég sá þær "í beinni" að ég fór að hugsa, hey þær eru bara til í alvörunni ... það er svolítið skrýtið, manni finnst eins og fólkið á skjánum sé ekki til ... skrýtið ...
heidi, þessi hvíta, er að verða 21 (23. ma? 1983)
keisha, þessi svarta, er að verða 20 (30. september 1984)
Mutya, þessi asíska, er að verða 19 (21. ma? 1985)
já ég fer ekki ofan af því, þær eru góðar tónlistarkonur....
þær semja víst megnið af efninu sínu sjálfar, reyndar fengu þær astoð við að semja too lost in you (sem var í
Love actually)
showið hjá þeim var líka mjög flott,
það var samt einn STÓR galli (fyrir utan allt stóra fólkið) og það var hversu lágt sviðið var, við þurftum ansi oft að horfa á tvo skjái sem voru til hliðar við sviðið.... sviðið hefði bara þurft að vera 1m hærra þá hefði það verið skárra....
þær sungu í rúmlega klukkutíma og ég heyrði aldrei falska nótu.... ótrúlegt hvað þær voru flottar,
ég hef tekið þá ákvörðun að kíkja á ódýra tónlistar markaðinn á morgun og kaupa disk með þeim ....
já SUGABABES rokka ... þær eru .... næstum því jafnsvalar og anna, ásta og ég.... og það er við erum sko svalar
þetta var mjög skemmtilegt kvöld, Diljá kom og bjargaði mér í vinnunni, þannig að ég kæmist fyrr á tónleikana,
anna, ásta og ég, skemmtum okkur mjög vel, eftir tónleikana, tókum við einn rúnt,
og fengum okkur pulsur á lélect...
og fórum svo heim að sofa...
takk fyrir kvöldið og takk fyrir mig ....
góðar stundir...
ElsaLund þegar klukkan er gengin 11:15 f.h.